Kjörstaður í Vestmannaeyjum vegna alþingiskosninga sem fram fara
29. október 2016 verður í Barnaskóla Vestmannaeyja, inngangur um norður- og suðurdyr.
Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags.
Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 23. september 2016 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 23. september 2016 við Hátún til og með Vesturvegi, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja á kjördegi.
Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum.
Jóhann Pétursson
�?lafur Elísson
�?ór Ísfeld Vilhjálmsson