Þjóðhátíðargestir streyma til Vestmannaeyja og álag eykst á ýmsum sviðum bæjarfélagsins. Í fyrra mynduðust biðraðir við matvöru- og áfengisverslanir á tímabili, enda margfaldast íbúafjöldinn yfir verslunarmannahelgina. Sighvatur Jónsson spjallaði við viðskiptavini og starfsfólk matvöruverslunar í ösinni í Vestmannaeyjum í gær.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 29. júlí kl. 15.26
Ótrúleg skemmdarverk
Það er ljóst að einhverjir sem eiga mjög bágt hafa verið á ferðinni í miðbænum í gær. Í morgun blasti ekki fögur sjón við okkur sem fórum um miðbæinn okkar. Aspartrén sem glatt hafa augu okkar allra bæði að sumarlagi sem og á vetrarmánuðum, þá skreytt ljósaseríum, hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum sem tóku sig til og brutu greinar af nær hverju einasta tré austan megin á Bárustígnum.
Fimmtudaginn 29. júlí kl. 08.27
Þjóðhátíð:
Löggæsla efld til muna
Löggæsla hefur verið efld frá fyrra ári og fíkniefnalöggæsla er öflug eins og alltaf áður. Nú verður mikil löggæsla og ekki síst fíkniefnalöggæsla í Landeyjahöfn á vegum lögreglunnar á Hvolsvelli sem njóta aðstoðar lögreglunnar á Selfossi. Að auki mun sérstakt teymi fíkniefnalögreglumanna á vegum ríkislögreglustjóra sinna eftirliti og munu koma yfir til Eyja til aðstoðar en einnig aðstoða uppi á landi á aðkomustöðum til Vestmannaeyja.
Fimmtudaginn 29. júlí kl. 07.21
Stefnir í metþjóðhátíð - Nánast fullt í allar ferðir
Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár
Ríflega 11.600 farþegar eiga bókað far til Eyja vikuna og dagana fyrir þjóðhátíð en reikna má með að einhver hluti farþega með Herjólfi fyrri part viku hafi verið í dagsferðum. Ef farið er yfir flutningstölur frá síðustu þjóðhátíð þá komu 9.400 þjóðhátíðargestir með Herjólfi og flugi en nú má allt eins má reikna með um 12.000 manns ef allt er talið. Heimamenn í Dalnum eru líklega um tvö þúsund þannig að reikna má með í kringum 14.000 manna þjóðhátíð. Í fyrra voru gestir tæplega 10.000 þegar mest var.
Miðvikudaginn 28. júlí kl. 19.59
Myndir og myndband
Nýja tilraunin gekk vel
- Eyjamenn hlupu til og fundi sér tjaldstæði í dag eftir settum reglum
Í dag var gerð áhugaverð tilraun þegar reynt var að koma skipulagi á tjöldun hvítu tjaldanna á þjóðhátíð. Til þessa hefur verið hálfgert skipulagsleysi þegar kemur að því að finna tjaldinu pláss en nú var ákveðið að láta slag standa, hælun tjaldplássa yrði ekki leyfð fyrr en á slaginu 18:00 og var fengin fallbyssa til að gefa merki. Tjaldbúar biðu spenntir og minnti uppákoman helst á villta vestrið þegar hleypt var á ný landsvæði. Og þótt fallbyssan hafi klikkað, beið fólk þar til klukkan á stóra sviðinu sló 18:00 og hljóp þá af stað. Myndir og myndband af viðburðinum má sjá hér að neðan.
Miðvikudaginn 28. júlí kl. 17.15
Allt á fullu í Landeyjahöfn
„Tjaldbúarnir og þeir sem ætla á þjóðhátíð fara að koma. Traffíkin í dag hefur ekkert verið meiri en venjulega þar sem það hefur alltaf allt verið fullskipað frá því að höfnin opnaði,“ segir Sigmar Jónsson. Hann segir farið að bæta við ferðum á morgun en þá verða farnar átta ferðir. Farnar verði sex, sjö og átta ferðir á sólarhring yfir verslunarmannahelgina. Venjulega eru farnar fjórar ferðir mánudaga til miðvikudaga en fimm ferðir hina dagana.
Miðvikudaginn 28. júlí kl. 16.29
Tjöldum saman!
Tjöldun hefst í kvöld klukkan 18.00
- Nýtt skipulag á því hvenær súlurnar fara upp
Í dag klukkan 18.00 hefst tjöldun hvítu tjalda þjóðhátíðarinnar en þá finna heimamenn tjaldinu sínu stað. Gera á tilraun í ár með að jafna leikinn þannig að allir fari af stað á sama tíma, nema hvað starfsmenn þjóðhátíðarnefndar fá að velja sér pláss á undan öðrum og eru það laun þeirra. Oftast nær er talsverður slagur um að finna besta plássið en aldrei hefur verið hægt að standa við tímasetningar fyrr en nú. Eða hvað?
Eldri fréttir
- Smartmedia færir þér þjóðhátíðardagskrána í tjaldið
- ÍBV tókst það sem KR tókst ekki
- Unnið að bílastæðamálum í Landeyjahöfn
- “Upplifi Þjóðhátið eins og eitt stórt ættarmót”
- Þjóðhátíðarlagið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2
- Guðbjörg skattadrottning
- Sjómannaafslátturinn hækkar vegna strandveiða
- Tveir fíkniefnaakstrar í Vestmannaeyjum
- 12 ára gamall með nýtt þjóðhátíðarlag
- Bæjarstjórn ætlar að borga hlut samgönguráðuneytisins
- Erum mætt á Þjóðhátíð
- Öflug löggæsla á Suðurlandi um Verslunarmannahelgina
- Ekkert vesen
- Ferðalangar streyma til Eyja
- Gleymdu sér í þjóðhátíðarspenningnum og sungu hástöfum
- Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir starta þjóðhátíð í Eyjum 2010 annað kvöld
- Tjöldum saman á miðvikudaginn klukkan 18
- Hermann í viðræður
- Full flugumferðarstjórn í Eyjum um verslunarmannahelgina
- „Menn, konur og börn leita Vitans“
- Þjóðhátíðarbingó í kvöld
- Siglingar í Landeyjahöfn
- Tólf marka leikur hjá KFS







12 ára gamall með nýtt þjóðhátíðarlag
Nýja tilraunin gekk vel
„Menn, konur og börn leita Vitans“
Tjöldum saman á miðvikudaginn klukkan 18
Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár 

.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



