Miðvikudaginn 10. mars kl. 17.51
Menn almennt ánægðir með loðnuvertíðina sem er að ljúka:

Aflinn í Eyjum 35 þúsund tonn

- Áhersla var lögð á hrognavinnslu - Framleiðslan hér rúm 3200 tonn

Aflinn í Eyjum 35 þúsund tonn Vinnslustöðvarbátarnir Ísleifur VE og Kap VE koma drekkhlaðnir til hafnar.
Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru um 35 þúsund tonn komin á land í Eyjum sem var hlutur Eyjamanna í kvótanum sem var í heild 150 þúsund tonn. Áhersla var lögð á hrognavinnslu og náðust rúm 3200 tonn af hrognum.  Megináhersla var lögð á að ná sem mestum verðmætum úr takmörk­uðum heimildum og áhersla lögð á hrognavinnslu. Verð á mjöli og lýsi er hátt þannig að sá hluti vinnsl­unnar skilar líka sínu og menn almennt ánægðir með vertíðina.
 
Meira
Föstudaginn 05. mars kl. 08.24

Nemendur aðstoða á loðnuvöktum

Nemendur aðstoða á loðnuvöktum
Loðnu var landað úr átta skipum í Vestmannaeyjum í gær. Samtals var aflinn rúmlega átta þúsund tonn. Meðal þeirra sem taka þátt í loðnuvinnslunni eru framhaldsskólanemendur í Eyjum.  Þeir nemendur sem hafa mætt vel í skólann fá vikufrí frá námi til að taka þátt í loðnuvertíðinni. Sólveig Adolfsdóttir, nemandi í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, segir að hún þurfi að læra meira heima þessa daga.
Meira
Fimmtudaginn 04. mars kl. 07.21
Vinnslustöðin - Nýr Gandí VE tilbúinn í apríl:

Verður bæði upp­sjávar- og bolfiskskip

- Mikil ásókn í pláss, segir útgerðarstjóri VSV

Verður bæði upp­sjávar- og bolfiskskip
Gandí VE 171, skip sem Vinnslu­stöðin festi nýlega kaup á, verður tilbúinn á veiðar í apríl. Um er að ræða vinnsluskip á uppsjávarafla og grálúðu. Einnig er hægt að gera hann út á ísfisk. Mikil ásókn er í pláss á Gandí.  Guðni Ingvar Guðnason, útgerðar­stjóri VSV, segist sannfærður um að kaupin á Gandí, sem áður hét Rex, eigi eftir að reynast happadrjúg fyrir félagið. „Hann er fyrst og fremst hugsaður til að auka möguleika okkar í veiðum og vinnslu,“ sagði Guðni.
Meira
Miðvikudaginn 03. mars kl. 16.57
Góður gangur í loðnunni - Ekki búist við meiri kvóta:

Átta skip með fullfermi til Vestmannaeyja í dag

Átta skip með fullfermi til Vestmannaeyja í dag
Loðnubátarnir streymdu með fullfermi til Eyja í dag af miðunum í Faxaflóa. Samtals átta skip með um 9000 tonn og vinnsluskipið Huginn kom inn til að losa sig við hrat. Vinnsluskipið Guðmundur var á miðunum að  frysta loðnu. Öll loðnan fer í hrogna­vinnslu og var búið að vinna hátt í 2000  tonn af hrognum sem er dýrasta afurðin sem loðnan gefur.  Vertíðin er að syngjast upp og ekki er gert ráð fyrir viðbótarkvóta nema að vestur­ganga komi þetta árið.
Meira
Miðvikudaginn 03. mars kl. 13.44
Líf og fjör í Vestmannaeyjahöfn:

Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar

Myndagallerí fylgir fréttinni

Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar
Stöðug umferð loðnuskipa var inn í Vestmannaeyjahöfn í morgun en sjö skip bíða nú löndunar eða eru í löndun.  Gærdagurinn var mjög góður hvað veiði varðar en flest skipanna voru við veiðar í Faxaflóa.  Hrognavinnsla er í fullum gangi, bæði í Vinnslustöð og Ísfélag og vonast menn til að loðnan sem nú kemur að landi, sé hæf til vinnslu hrogna á Japansmarkað.
Meira
Miðvikudaginn 03. mars kl. 08.16

Jón Vídalín í vorralli Hafró

Jón Vídalín í vorralli Hafró
Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða svokallað vorrall, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson.
 
Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20-500 m dýpi.
Meira
Þriðjudaginn 02. mars kl. 13.53

Ásókn í störf á nýjum frystitogara

Ásókn í störf á nýjum frystitogara
Útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir mikla ásókn í störf um borð í nýjum frystitogara sem fyrirtækið hefur keypt af þrotabúi dótturfélags Nýsis. Ráða þarf í rúmlega tuttugu stöður um borð og segir Guðni Ingvar Guðnason útgerðarstjóri að nú þegar hafi tvöfalt fleiri fyrirspurnir borist eftir að auglýst var eftir skipstjóra.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þrettándinn 2010
Þrettándamyndband ÍBV
Tónleikar Lúðrasveitar Vm. - svipmyndir
Alma Eðvaldsdóttir býr ínæsta húsi við Lifró
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi