Þriðjudaginn 07. febrúar kl. 10.00
Undanúrslitaleikur í bikar kvenna í kvöld:

Stelpurnar mínar taka þetta

- Segir Elísa Sigurðardóttir, sem lyfti bikarnum síðast á loft fyrir ÍBV 2004

Stelpurnar mínar taka þetta Guðbjörg Guðmannsdóttir, núverandi leikmaður ÍBV og Elísa með bikarinn á milli sín árið 2004.
Eins og áður hefur komið fram leikur kvennalið ÍBV gegn FH í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag klukkan 18. Liðin eru átta ár frá því að ÍBV varð síðast bikarmeistari en 2004 hafði ÍBV betur gegn Haukum í Laugardalshöllinni 35:32 í stórskemmtilegum úrslitaleik. ÍBV var reyndar langbesta liðið þetta árið, vann allt og komst í undanúrslit í Áskorendakeppni Evrópu.
Meira
Þriðjudaginn 07. febrúar kl. 07.25

Svavar Knútur heldur tónleika á fimmtudaginn

- Fyrstu tónleikar hans í Eyjum. - Verða á Kaffi Kró og hefjast klukkan 21:00.

Svavar Knútur heldur tónleika á fimmtudaginn
Tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Svavar Knútur heldur tónleika á Kaffi Kró næstkomandi fimmtudag klukkan 21:00.  Svavar Knútur hefur verið iðinn við kolann undanfarin misseri og komið víða fram, bæði hérlendis og erlendis.  Auk tónleikana á Kaffi Kró, mun Svavar Knútur koma fram í Grunnskóla Vestmannaeyja og á Hraunbúðum.
Meira
Þriðjudaginn 07. febrúar kl. 07.21
Fótbolti.net:

Hemmi Hreiðars þarf í aðgerð

Hemmi Hreiðars þarf í aðgerð
Hermann Hreiðarsson verður líklega frá í einhvern tíma en hann þarf að fara í aðgerð. Frá þessu greindi hann í viðtali við Sportrásina á Rás 2 í gærkvöldi.  „Ég lenti asnalega á hendinni og skall á öxlinni svo eitthvað fór í sundur. Það er líklegt að ég þurfi að fara í einhverja aðgerð vegna þess," sagði Hermann í viðtalinu.
 
Meira
Mánudaginn 06. febrúar kl. 16.09
Dagbók lögreglu:

Stal lunda og fór með hann á Lundann

Stal lunda og fór með hann á Lundann
Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero.  Vitað var hver var þar að verki og fóru lögreglumenn á stúfana og höfðu uppi á manninum á skemmtistaðnum Lundanum, með lundann.  Lundinn, það er að segja sá uppstoppaði, hafði eitthvað skemmst í flutningunum en maðurinn kvaðst tilbúinn að bæta tjónið.  Þetta má lesa í dagbók lögreglunnar hér að neðan.
Meira
Mánudaginn 06. febrúar kl. 15.57

Smurstöðin fallin

Smurstöðin fallin
Um síðustu helgina voru þeir hjá Laurel & Hardy að brjóta niður Smurstöðina við Græðisbraut. Þetta hús átti sögu en kannski ekki mjög merka sögu. Byggð til að þjóna miklum fjölda vörubíla sem hér voru, trogbílarnir voru reyndar lengst af á síðustu öld miklu fleiri en minni einkabílar hér í Eyjum.
Nú er smurstöðin að víkja fyrir nýju húsi Húsasmiðjunnar, enda stóð hún á fremur illa nýttu svæði.
 
Meira
Mánudaginn 06. febrúar kl. 14.28
Eimskipsbikarinn:

Stórleikur hjá stelpunum á morgun

- Taka á móti FH í undanúrslitum bikarkeppninnar

Stórleikur hjá stelpunum á morgun
Kvennalið ÍBV á fyrir höndum afar mikilvægan leik á morgun, þriðjudag klukkan 18, þegar liðið tekur á móti FH í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppninnar.  Liðin hafa einu sinni mæst í vetur en þá unnu Eyjastúlkur stórsigur, 24:10 en staðan í hálfleik var 11:6.  FH er í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir 10 leiki en ÍBV er í 4. sæti með 12 stig eftir jafn marga leiki.  Samkvæmt bókinni ætti ÍBV því að eiga auðveldan leik fyrir höndum en bikar er alltaf bikar og þar getur allt gerst.
Meira
Mánudaginn 06. febrúar kl. 14.20
Fréttatilkynning:

Opinn fundur VG og Samfylkingar á morgun

Opinn fundur VG og Samfylkingar á morgun
Þriðjudaginn 7. feb. kl. 20:00, halda Vinstrihreyfingin- grænt framboð og Samfylkingin sameiginlegan opinn fund í Alþýðuhúsinu.  Á fundinn mæta frá Vinstri grænum: Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir og þingmaðurinn Björn Valur Gíslason. Frá Samfylkingunni: Þingmennirnir Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson.  Landsmálin almennt verða til umræðu, ekki síst sjávarútvegsmál, atvinnumál, byggðamál, ESB mál og fleira.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn