Mánudaginn 26. júlí kl. 11.05
Valmundur Valmundsson bloggar:

Siglingar í Landeyjahöfn

Siglingar í Landeyjahöfn
Siglingar í Landeyjahöfn eru bannaðar öllum skipum nema Herjólfi. Þetta er ákvörðun Siglingastofnunar. Að þeirra sögn meðan reynsla er að komast á siglingar Herjólfs þangað. Mér finnst þessi ákvörðun stofnunarinnar arfavitlaus. Virðist þjóna þeim tilgangi einum að Eimskip fái ekki samkeppni um fólksflutninga til og frá Eyjum. Minnir um margt á Loftleiðir á sínum tíma. Aðstöðuleysi í Landeyjahöfn fyrir smábáta er bagalegt en úr því er hægt að bæta með litlum tilkostnaði. Til er flotbryggja sem hentar vel þar og ekki mikill tilkostnaður að koma henni fyrir.
Meira
Miðvikudaginn 14. júlí kl. 11.22
Valmundur Valmundsson bloggar:

Bara blíða

Bara blíða
Jæja nú eru pungarnir farnir til makrílveiða, þ.e. Bergey/Vestmannaey að tvílembast. Dala Rafn fór aleinn á makríl og spennand að fylgjast með hvernig gengur.  VSV skirrist við að hækka verðið í bræðsluna, eru komnir í 32 kr. en aðrir sem gera út á að bræða borga kr. 37-39 fyrir makrílinn.  Svo er kapítuli út af fyrir sig að taka kr. 5 af þeim sem veiða fyrir að flytja aflann í land með Ísleifi. Báðir aðilar hagnast og ekki síst útgerðin. Á ekki að líðast á 21. öld.
Meira
Fimmtudaginn 01. júlí kl. 08.25
Sigurður Jónsson bloggar:

Það þarf nýjan Herjólf milli lands og Eyja

Það þarf nýjan Herjólf milli lands og Eyja
Herjólfur er kominn til ára sinna og því miður eru bilanir alltof tíðar. Það er alveg á hreinu að það þarf nýtt skip í siglingar milli lands og Eyja. Verði Herjólfur vélarvana fyrir utan Landeyjahöfn gæti það örugglega skapað mikið hættuástand. Það er ekkert grín að vera með 300-400 farþega og eiga á hættu að svona vandamál geti komið upp.
Meira
Mánudaginn 28. júní kl. 10.53
Georg Eiður Arnarson bloggar:

Goggi býður í Blíðukró

Goggi býður í Blíðukró
Goslokahátíðin er um næstu helgi og að venju verður opið hús í Blíðukró á laugardagskvöldið.  Eins og áður þá fá allir sem vilja að fara upp og taka lagið og eða fara með gamanmál.  Nú þegar liggur fyrir að hljómsveitin Afrek muni taka lagið, einnig ætlar vinur minn Grétar Mar að reyna að mæta og segja sögur af hinum ýmsu ævintýrum sínum.
Meira
Fimmtudaginn 10. júní kl. 10.17
Sigursveinn Þórðarson skrifar:

Það besta og það versta

- Gamli vinnuveitandi minn, Ómar Garðarsson hafði því rétt fyrir sér í forsíðugrein Frétta

Það besta og það versta

Það má kannski segja að einu „taparar" í kosningunum hér í Eyjum hafi verið Framsóknarflokkurinn enda náðu þau ekki takmarki sínu að ná inn manni í bæjarstjórn. Voru reyndar töluvert frá því enda næsti maður inn fimmti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Gamli vinnuveitandi minn, Ómar Garðarsson hafði því rétt fyrir sér í forsíðugrein Frétta í síðustu viku, að baráttan væri á milli Helgu Bjarkar sem var í 5. sæti D-lista, Guðlaugs þriðja manns á V-lista og Sigurðar oddvita B-lista. Veit að fréttin olli miklum usla enda var fyrirfram talið að baráttan væri um hvort Sjálfstæðismenn héldu meirihluta eða ekki.

Meira
Mánudaginn 07. júní kl. 09.47
Georg Eiður Arnarson bloggar:

Kosningarúrslitin síðustu helgi, kvótakerfið og lundinn

Kosningarúrslitin síðustu helgi, kvótakerfið og lundinn
Kosningarnar hér í Eyjum síðustu helgi fóru nákvæmlega eins og ég spáði fyrir um, og það nánast upp á atkvæði og í sjálfu sér er lítið um þau að segja. Á landsvísu eignuðumst við Frjálslynd tvo bæjarfulltrúa, en áttum engan fyrir og erum því nokkuð sátt. Varðandi þá hugmynd okkar að skila auðu eða hundsa þessar kosningar, þá er ég kannski fyrst og fremst ánægður með það, hversu margir höfðu samband við mig og lýstu yfir stuðningi við okkur Frjálslynd, en sjálfur mætti ég ekki á kjörstað.
Meira
Laugardaginn 29. maí kl. 08.07
Georg Eiður Arnarson bloggar:

Gleðilega eurovision helgi allir

Gleðilega eurovision helgi allir
Vegna anna að undanförnu, hef ég hreinlega ekki mátt vera að því að skrifa, en nú skal bætt úr. Ég hef reynt að lesa flest af því sem flokkarnir sem bjóða fram næstu helgi hafa látið frá sér, en í raun og veru hefði verið nóg að lesa frá einum flokki, vegna þess að ekkert af þessum framboðum sker sig úr í stefnumálum. 2006 hins vegar þótti mér spennandi kostur að bjóða fram með það málefni á oddinum, að koma af stað uppbyggingu á Eiðinu fyrir stórskipahöfn, ferjuaðstöðu og hugsanlega þurrkví. Gömlu flokkarnir tóku þetta málefni líka upp á sína arma á þeim tíma, en eitthvað hefur lítið verið um efndir á þessu kjörtímabili. Einnig hef ég hvergi séð minnst á þetta mál í stefnuskrám flokkanna.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi