Laugardaginn 04. febrúar kl. 14.48

Seinni ferð Herjólfs fellur niður

- Slæm veðurspá

Seinni ferð Herjólfs fellur niður
Því miður neyðumst við til þess að fella niður seinni ferð laugardag vegna slæmrar veður- og ölduspá. Nú gerir spáin ráð fyrir 28 m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð.  Mun betra útlit er fyrir sunnudag og er gert ráð fyrir því að Herjólfur sigli samkvæmt áætlun þá.  Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi.
Meira
Laugardaginn 04. febrúar kl. 12.03

Óvissa með seinni ferð Herjólfs í dag

Óvissa með seinni ferð Herjólfs í dag
Því miður hefur spáin aftur versnað og því er óvissa með seinni ferð dagsins.  Búist er við 28 m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð.  Við hvetjum farþega okkar til að fylgjast með fréttum af veðri og á vefsíðum okkar.  Næstu upplýsingar verða gefnar út kl 13.
 
Meira
Föstudaginn 03. febrúar kl. 17.35

Réttindalaus, undir áhrifum og með eiturlyf í bílnum

- Lögreglan í Vestmannaeyjum stöðvaði 21 árs ökumann við komuna til Eyja - 22 ára farþegi í bílnum átti efnin

Réttindalaus, undir áhrifum og með eiturlyf í bílnum
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur eftirlit með komufarþegum Herjólfs í Vestmannaeyjum.  Við reglubundið eftirlit í dag, voru höfð afskipti af ökumanni bifreiðar sem var að koma með skipinu.  Í ljós kom að ökumaðurinn var sviptur ökuleyfi.  Fíkniefnahundurinn Luna var látinn leita í bifreiðinni og fann hundurinn 150 til 200 grömm af maríjúana.  Þá reyndist ökumaðurinn, sem er 21 árs, einnig vera undir áhrifum fíkniefna.
Meira
Föstudaginn 03. febrúar kl. 12.42

Siggi Sigurjóns á leiðinni til Eyja með Afann

- Verður í Höllinni 11. febrúar næstkomandi

Siggi Sigurjóns á leiðinni til Eyja með Afann
Grín einleikurinn Afinn, með Sigga Sigurjóns í aðalhlutverki, verður sýndur í Höllinni laugardaginn 11. febrúar.  Afinn hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og hefur auk þess verður settur upp í Þýskalandi.  Forsala miða er hafin í Axel Ó. en miðar verða einnig seldir við innganginn á sýningardegi.  Þá ætlar Einsi Kaldi að bjóða upp á leikhúsmatseðil eins og honum er einum lagið.
Meira
Föstudaginn 03. febrúar kl. 08.00
Stórhöfði:

Úrkoma í janúar aldrei mælst meiri frá upphafi mælinga

Úrkoma í janúar aldrei mælst meiri frá upphafi mælinga
Úrkoma á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist 314,4 mm. í janúar.  Þar hefur verið mælt samfellt frá 1921 og hefur aldrei mælst meiri úrkoma í janúar en nú. Áður var mælt í kaupstaðnum frá 1881 og þar mældist heldur aldrei meiri úrkoma í janúar en nú. Endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir á fleiri veðurstöðvum en svo virðist sem ekki hafi heldur mælst meiri úrkoma Í Vík í Mýrdal í janúar í ár síðan 1950.
Meira
Föstudaginn 03. febrúar kl. 07.59

Hanna Birna opnar blóma­verslun við Bárustíg

Hanna Birna opnar blóma­verslun við Bárustíg
Hanna Birna Jóhannsdóttir hefur opnað blómabúð, þar sem Blóma­skerið var áður til húsa við Bárustíg 11 en verslunin hefur fengið nafnið Blómabúð Hönnu. Hanna hefur um áratugaskeið verið viðloðandi blóma­skreytingar og starfaði m.a. lengi með Imbu Johnsen, í blóma­verslun hennar.
Meira
Fimmtudaginn 02. febrúar kl. 15.16

Yfirleitt logn á Stórhöfða að undanförnu

Yfirleitt logn á Stórhöfða að undanförnu
Þeir sem leggja við hlustir þegar útvarpað er frá Veðurstofu Íslands kl. 10.10  á morgnana, hafa tekið eftir því að nú að undanförnu hefur  yfirleitt verið logn á Stórhöfða. - Ekki þar fyrir að oft er jú logn á Stórhöfða , -  en þegar rokhvasst er í Vestmannaeyjabæ, en logn á Stórhöfða, - er eitthvað skrítið að gerast. Óskar Sigurðsson í Stórhöfðavitanum, þar sem veðrið er tekið, sagði að á þessu væri einföld skýring: Sjálfvirki vindmælirinn er bilaður og hefur verið lengi, hann sendi því þau skilaboð  til  Veðurstofunnar að logn sé á Stórhöfða.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn