Mánudaginn 19. júlí kl. 10.36

Lokað í Straumi fimmtudag og föstudag

Lokað í Straumi fimmtudag og föstudag Smári og Sigurlína, eigendur Straums.
Vegna sumarleyfa verður lokað í Efnalauginni Straumi - Þvottahúsi fimmtudaginn 22. júlí og föstudaginn 23. júlí.  Viðskiptavinum þvottahússins er bent á að koma með fatnað og annað sem þarfnast hreinsunar í dag eða í síðasta lagi á morgun, þriðjudag.  Um leið biðjumst við velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að skapa viðskiptavinum okkar.
Meira
Föstudaginn 16. júlí kl. 12.56
Styrmir Sigurðarson, slökkviliðsmaður og bráðatæknir, skrifar:

Sjúkraflug í Vestmannaeyjum

Sjúkraflug í Vestmannaeyjum
Mikil umræða hefur verið um stöðu sjúkraflugs í Vestmannaeyjum undanfarnar vikur og er ætlun mín að reyna að varpa ljósi á hvernig staðan er og hvort þeir sem slasast eða veikjast alvarlega hafi jafna möguleika og aðrir landsmenn til að fá besta mögulegu læknismeðferð á sem stystum tíma.  Til að gera fólki grein fyrir hvað við er átt, þá miða flest vestræn ríki sig við ákveðinn tíma sem líður frá slysi þangað til sjúklingur er kom­inn undir læknishendur þar sem varanleg lækning eða meðferð getur farið fram.
Meira
Mánudaginn 12. júlí kl. 08.52
Lögreglumennirnir Hreinn Júlíus Ingvarsson og Tryggvi Hjaltason skrifa:

Okkar tilfinning að fíkniefnaneyt­endur séu orðnir yngri

- Framboð og eftirspurn orðin það mikil að auðvelt er að nálgast efnin

Okkar tilfinning að fíkniefnaneyt­endur séu orðnir yngri
Fíkniefnavandinn hefur farið vax­andi á Íslandi undanfarin ár og eru Vestmannaeyjar þar engin undantekning. Illa virðist ganga að ná stjórn á þessum vanda en að öllu jöfnu ætti að vera hægt að stýra honum, eða halda honum í lág­marki, með virkum forvörnum og fræðslu til ungmenna. En er eitt­hvað annað til ráða og hvað getum við gert til að gera samfélagið okkar öruggara fyrir alla?
Meira
Miðvikudaginn 30. júní kl. 08.48
Páley Borgþórsdóttir skrifar:

Af hverju að kaupa merki goslokahátíðar?

Af hverju að kaupa merki goslokahátíðar?
Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður haldin hátíðleg um næstu helgi með fjölbreyttri skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Að hátíðinni er enginn aðgangseyrir og dagskrá helgarinnar bæjarbúum og gestum að kostnaðarlausu. Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að bjóða ávallt upp á metnaðarfulla barnadagskrá þessa helgi og verður engin undantekning gerð á þetta árið. Merki goslokahátíðar verður til sölu fyrir þessa hátíð og munu sölubörn ganga í hús auk þess sem merkin verða til sölu í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Eymundsson og á byggðasafninu.
Meira
Mánudaginn 28. júní kl. 11.20

Dúndurfréttir með Led Zeppelin tónleika í Höllinni

Dúndurfréttir með Led Zeppelin tónleika í Höllinni
Dúndurfréttir verða á fimmtudagskvöldið 1. júlí í Höllinni Vestmannaeyjum.  Um er að ræða 40 ára afmælistónleika til heiðurs þessari mögnuðu sveit.  Þetta verða blóðnasir og algjör geggjun.  Húsið opnar kl. 21.00 og tónleikarnir hefjast kl. 21.30.
Meira
Laugardaginn 12. júní kl. 10.58

Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu

- vilja fá hana sem varaformann Sjálfstæðisflokksins

Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu
Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á Ragnheiði Elínu Árnadóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi.  Eyverjar telja mikilvægt að forysta Sjálfstæðisflokksins endurspegli þann fjölbreytileika sem einkennir flokkinn.
Meira
Miðvikudaginn 09. júní kl. 14.01
Hulda Sigurðardóttir í Vatnsdal skrifar:

Hraðakstur og Pæjumót

Hraðakstur og Pæjumót
Undanfarið hafa mótorhjól og bílar verið að stunda hraðakstur upp Strembugötu.  Síðast í gærkvöldi var lögreglan að elta mótorhjól á miklum hraða upp Strembugötuna en málið er þeir stinga lögregluna af.  Þetta er búið að vera mjög slæmt undanfarin kvöld.  Ungir ökumenn á hraðskreiðum bílum stunda sömu iðju, jafnvel samhliða í kappakstri á ofsahraða.  Nú er Þæjumótið um helgina og sjálfsagt er matur í Höllinni, þannig að stöðugur straumur krakka er upp Strembugötuna. 
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi