Miðvikudaginn 28. júlí kl. 13.00

ÍBV tókst það sem KR tókst ekki

ÍBV tókst það sem KR tókst ekki
Eyjamenn hafa samið við suður-afrísku knattspyrnukonuna Noko Matlou sem kjörin var besti leikmaður Afríku í febrúar 2009. Hún er þegar komin með leikheimild og má því leika með 1. deildarliðinu gegn Fjölni á fimmtudagskvöld.  Matlou hefur áður verið í fréttum hér á landi því í fyrra reyndi KR að fá hana til sín. Ekkert varð úr því en talið er að umboðsmaður Matlou hafi samið við KR án vitundar félagsins sem hún var þá hjá, Brazilian Ladies FC.
Meira
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 08.44

Hermann í viðræður

Hermann í viðræður
Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður í knattspyrnu er að hefja viðræður við enska 1. deildarfélagið Portsmouth um nýjan samning og vonast til að vera áfram hjá félaginu á komandi leiktíð. Hermann sleit hásin í mars og missti því af síðustu vikum Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í bili, en er á réttri leið með að jafna sig á þeim meiðslum.
Meira
Mánudaginn 26. júlí kl. 10.51
3. deild karla:

Tólf marka leikur hjá KFS

Tólf marka leikur hjá KFS
KFS vann góðan sigur á KFK í B-riðli 3. deildar á laugardaginn.  Heil tólf mörk voru skoruð í leiknum, þar af sjö í síðari hálfleik en lokatölur urðu 8:4 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3:2.  Hreint ótrúlegar lokatölur eftir 90 mínútna leik.  Stefán Björn Hauksson skoraði þrennu fyrir KFS, Einar Kristinn Kárason tvö og þeir Sæþór Jóhannesson, Anton Rafn Jónasson og Ingólfur Einisson eitt mark hver.
Meira
Sunnudaginn 25. júlí kl. 18.49
Pepsídeild karla:

Sigur í kaflaskiptum leik

ÍBV vann Val 3:1 eftir að hafa verið 0:1 undir í hálfleik. - Tvö stórglæsileg mörk í dag. - Eyjamenn í efsta sætið, hvað gera Blikar?

Sigur í kaflaskiptum leik
ÍBV hafði betur gegn Val í dag á Hásteinsvellinum en lokatölur urðu 3:1.  Leikurinn var afar kaflaskiptur, Valsmenn voru sterkari í fyrri hálfleik og voru verðskuldað yfir 0:1 í hálfleik.  En Eyjamenn sýndu sparihliðarnar í seinni hálfleik, skoruðu tvö gullfalleg mörk, fyrst varamaðurinn Damien Justin Warlen þegar hann þrumaði boltanum inn af 25 metra færi og svo markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson sem lagði boltann glæsilega upp undir samskeytin og nýtti sér vindinn glæsilega.  Tryggvi bætti svo við þriðja markinu úr vítaspyrnu og innsiglaði sigurinn.
Meira
Laugardaginn 24. júlí kl. 16.09
Bikardraumurinn búinn:

Sterkar Stjörnur unnu ÍBV-stúlkur

Sterkar Stjörnur unnu ÍBV-stúlkur
Í blíðskaparveðri á Hásteinsvelli í dag, þurftu ÍBV stúlkur að sætta sig við tap í  undanúrslitum Visa bikarsins. Þær fundu ofjarla sína í Stjörnustúlkum sem unnu verðskuldað og sem  leika þá til úrslita við Val um bikarmeistaratitlinn. En árangur ÍBV stelpanna í bikarkeppninni hefur samt verið afar góður, að komast í undanúrslitin.
Meira
Laugardaginn 24. júlí kl. 10.19

Knattspyrna og aftur knattspyrna

Knattspyrna og aftur knattspyrna
Það er mikið um að vera á knattspyrnusviðinu í Eyjum í dag. Auk bikarleiks ÍBV og Stjörnunnar kl. 14.00 verður einnig leikur KFS og KFK á Helgafellsvelli og hefst sá leikur einnig kl. 14.00. Þessi tvö lið berjast um laust úrslitasæti í  B-riðli 3. deildar.
Meira
Laugardaginn 24. júlí kl. 07.12
Visa-bikarkeppnin:

Stórleikur í dag hjá stelpunm

- Taka á móti Stjörnunni í undanúrslitum kl. 14:00

Stórleikur í dag hjá stelpunm
Í dag klukkan 14:00 leikur kvennalið ÍBV stærsta leik liðsins í áraraðir þegar liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í undanúrslitum bikarkeppninnar.  ÍBV leikur sem kunnugt er í 1. deild Íslandsmótsins en leikurinn fer fram á Hásteinsvellinum.  Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast svo úrvalsdeildarliðin Valur og Þór/KA.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi