Þriðjudaginn 31. janúar kl. 08.21
Fréttatilkynning:

Vetrarhátíð Vestmannaeyja í Höllinni 17. mars

- Bó Halldórs mætir til Eyja ásamt stórsveit og dansleikur eftir tónleika

Vetrarhátíð Vestmannaeyja í Höllinni 17. mars
Vinsælasti söngvari og poppari Íslands undanfarin rúm 40 ár, sjálfur Björgvin Halldórsson, er á leið til Eyja og skemmtir Eyjamönnum og gestum þeirra í Höllinni þann 17.mars. Björgvin mætir ásamt 6 manna hljómsveit og heldur svipaða tónleika og hann hélt í tilefni sextugs afmælisins á liðnu ári. Ekki nóg með að hann spili rjómann af sínum bestu lögum á tónleikum, heldur ætlar hann síðan að halda ball í anda Björgvins og Brimklóar, enda á hljómsveitin 40 ára afmæli á þessu ári, eins og önnur flott og fræg sveit, hljómsveitin Eagles.
Meira
Mánudaginn 23. janúar kl. 11.20
Heimaeyjargosið:

Þakkaróður í Vinaminni í kvöld

Þakkaróður í Vinaminni í kvöld
23. janúar 2012 eru 39 ár liðin frá mestu björgun Íslandssögunnar, þegar heilu byggðarlagi er bjargað frá eldgosinu sem hófst þá um nóttina.  Nokkrir tónlistarmenn og leikarar ætla að hittast á Vinaminni klukkan 21:00 og flytja þakkaróð.  Leikfélag Vestmannaeyja sér um upplestur úr bókinni Útkall Flóttinn frá Heimaey eftir Óttar Sveinsson. Tónlistarmenn flytja lög og ljóð er þeim finnst hæfa tilefninu. Af þessu tilefni verður gefinn út nýr bolli með teikningu Arnórs Hermannssonar af húsinu Skálholti sem stóð við Urðaveg 43.
Meira
Laugardaginn 21. janúar kl. 07.40
Úr heimum safnahúss:

Goslokanna minnst í Einarsstofu

- Auk þess sýndar valdar myndir úr safni Páls Steingrímssonar

Goslokanna minnst í Einarsstofu
Mánudaginn 23. janúar opnum við í Einarsstofu í Safnahúsinu sýningu um eldgosið sem við nefnum Eldgos – aflvaki sagna og sigra.  Á sýningunni getur að líta margvíslegar heimildir úr Bóka-, Skjala- og Byggðasafni um örlagadaga Vestmannaeyja. Jafnframt höfum við tekið saman listaverk eftir ýmsa listamenn úr Eyjum er grunlausir mála svæði er síðar varð horfinn heimur.
Meira
Fimmtudaginn 12. janúar kl. 15.23

Dans á rósum leikur á SPOT um Helgina!

Dans á rósum leikur á SPOT um Helgina!
Gleðigjafarnir í Hljómsveitinni Dans á rósum verða á ferð og flugi um helgina og ætla að leggja leið sína í Kópavoginn.  Hljómsveitin mun troða upp á SPOT, einu glæsilegasta danshúsi landsins, bæði föstudags og laugardagskvöld 13. og 14. janúar.  Lofa félagarnir góðu stuði og hvetja alla dansþyrsta til að mæta.
Meira
Fimmtudaginn 12. janúar kl. 10.31

Uppistand færist upp í Höll

- Afinn eltir þá félaga

Uppistand færist upp í Höll
Uppistand þeirra Péturs Jóhanns Sigfússonar og Þorsteins Guðmundssonar, Steini, Pési og gaur á trommu, mun fara fram í Höllinni, en ekki Kiwanis eins og áður var auglýst. Þetta er gert vegna mikilla eftirspurnar eftir miðum en salurinn í Kiwanis tekur aðeins 200 manns í sæti á meðan í Höllinni komast auðveldlega fyrir 500 áhorfendur.
Meira
Sunnudaginn 08. janúar kl. 11.31

Stórtónleikar í Höllinni í kvöld

- Bjartar vonir vakna hefjast klukkan 20:00 - Forsala í dag, sunnudag í La Tienda milli 13 og 16

Stórtónleikar í Höllinni í kvöld
Þrettándahátíðinni í Eyjum lýkur í kvöld með afar vönduðum og góðum tónleikum þar sem nokkrir af bestu tónlistarmönnum landsins koma saman til að leika lög Oddgeirs Kristjánssonar.  Þetta eru sömu tónleikar og voru í Hörpunni í nóvember á síðasta ári en þeir tónleikar fengu einróma lof.  Forsala miða heldur áfram í dag, sunnudag í versluninni La Tienda við Strandveg milli 13 og 16.
Meira
Laugardaginn 07. janúar kl. 11.31
Myndir og myndband:

Þrettándinn fór vel af stað

- Hátíðahöldin halda áfram í dag, laugardag og á morgun

Þrettándinn fór vel af stað
Þrettándinn er sannkölluð bæjarhátíð í Eyjum en hátíðahöldin hófust síðastliðinn fimmtudag.  Þótt um sé að ræða fjögurra daga bæjarhátíð, þá náði hún hámarki sínu í gær, föstudag á hinum eiginlega þrettánda degi jóla þegar Þrettándagleði ÍBV fór fram.  Hún hófst með blysför frá Hásteini eftir myndarlega flugeldasýningu og var gengið fylktu liðið upp á malarvöll við Löngulág þar sem jólasveinar, álfar og tröll heilsuðu upp á börn og fullorðna en á miðjum vellinum logaði myndarlegur bálköstur.  Sjón er í raun sögu ríkari en með fréttinni fylgja bæði myndir og myndband.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn