Miðvikudaginn 16. nóvember kl. 13.34

Sjávarútvegur ein af undirstöðum atvinnulífsins

- segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem býður sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. - Ánægjuleg heimsókn til Eyja

Sjávarútvegur ein af undirstöðum atvinnulífsins Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrum borgarstjóri í Reykjavík býður sig fram í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem hefst í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag. Hanna Birna heimsótti Eyjarnar á föstudag í síðustu viku þar sem hún kynnti sig og sín málefni í komandi formannskjöri.  Eyjafréttir.is sendu nokkrar spurningar á Hönnu Birnu en svörin má sjá hér að neðan.
Meira
Föstudaginn 11. nóvember kl. 09.46

Aðild að Evrópusambandinu til umræðu á laugardagsfundi

Aðild að Evrópusambandinu til umræðu á laugardagsfundi
Frosti Sigurjónsson hagfræðingur verður gestur Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum á laugardagsfundi, laugardaginn 12. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Ásgarði og hefst kl. 11.00.  Frosti mun vera með stutta framsögu um Evrópusambandið og í framhaldi svara spurningum gesta, en Frosti er ötull talsmaður þess að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði lögð til hliðar og stendur ásamt fleirum fyrir undirskriftarsöfnun þess efnis á vefsíðunni www.skynsemi.is.
 
Meira
Föstudaginn 04. nóvember kl. 11.25

Laugardagsfundur í Ásgarði á morgun

Laugardagsfundur í Ásgarði á morgun
Formaður og varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, þeir Davíð Þorláksson og eyjamaðurinn Helgi Ólafsson verða gestir á laugardagsfundi sjálfstæðisfélaganna, laugardaginn 5.nóvember.  Fundurinn fer fram í Ásgarði og hefst kl. 11.00.
Meira
Föstudaginn 21. október kl. 12.44
Ályktun Framsóknarfélags Vestmannaeyja:

Krefjast þess að hækkun Herjólfsfargjalda verði dregin til baka

- Niðurskurður í heilsugæslu, löggæslu og menntamálum í Eyjum komin vel yfir sársaukamörk

Krefjast þess að hækkun Herjólfsfargjalda verði dregin til baka
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka.  Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.
Meira
Föstudaginn 07. október kl. 10.21

Upptökumannvirki til umræðu á fundi Sjálfstæðismanna

Upptökumannvirki til umræðu á fundi Sjálfstæðismanna
Gestir laugardagsfundar í Ásgarði laugardaginn 8. október verða Ólafur Þór Snorrason og Friðrik Björgvinsson frá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar.  Á fundinum munu þeir Ólafur Þór og Friðrik ræða um málefni skipalyftunnar, upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar.
Meira
Föstudaginn 23. september kl. 12.02

Einar Björn gestur á laugardagsfundi

Einar Björn gestur á laugardagsfundi
Einar Björn Árnason, matreiðslumeistari verður gestur á laugardagsfundi Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum á morgun, laugardag.  Fundurinn hefst klukkan 11:00 en á fundinum mun Einar Björn kynna fyrirtæki sitt.
Meira
Föstudaginn 16. september kl. 17.04

Bjargvætturinn á laugardagsfund

Bjargvætturinn á laugardagsfund
Á morgun, laugardaginn 17. september klukkan 11:00 verður haldinn laugardagsfundur Sjálfstæðismann í Vestmannaeyjum í félagsheimili þeirra, Ásgarði.  Frummælandi á fundinum verður Eyjamaðurinn Martin Eyjólfsson en umræðuefnið verða samningaviðræðurnar við ESB og sjávarútvegsmálin.
Meira
Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn