Það er útlit fyrir afar spennandi Norðurlandamót barnaskólasveita sem fram fer í Vestmannaeyjum um helgina. Í fyrstu umferð gerðu heimamenn í Grunnskóla Vestmannaeyja jafntefli við Rimaskóla. Norðmenn unnu Svía, 2,5-1,5 og Finnar og Danir gerðu 2-2 jafntefli. Margt bendir því afar jafns og spennandi móts og að úrslitin ráðast ekki fyrr en á síðustu metrunum. Í 2. umferð, sem hefst kl. 16:30 teflir Rimaskóli við finnsku sveitina en Grunnskóli Vestmanneyja við sænsku sveitina.