Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að leikur ÍBV og Fylkis verði færður fram um einn dag og verði því á morgun, laugardag klukkan 14.00. Í tilkynningu frá sambandinu kemur fram að spáð er slæmu veðri í Vestmannaeyjum á sunnudag og ólíklegt ða leikhæft verði á þeim tíma sem leikurinn er settur á. Þar sem um næst síðustu umferð deildarinnar er um að ræða, verður leikurinn að fara fram um helgina. Vinnslustöð Vestmannaeyja býður Eyjamönnum frítt á leikinn.