Viðar Örn Kjartansson, framherji ÍBV, er ekki með slitin krossbönd eins og óttast var. Krossböndin reyndust ekki slitin heldur losnuðu þau frá beininu við neðanvert hnéð en bein milli hnés og sköflungs brotnaði. Viðar fór í aðgerð í hádeginu í hjá Ágústi Kárasyni þar sem að þetta var lagað.