Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja vann 4-0 stórsigur á dönsku sveitinni í þriðju umferð NM barnaskólasveita sem fram fór í morgun. Rimaskóli gerði 2-2 jafntefli við sænsku sveitina. Norska sveitin er efst með 8,5 vinninga, Eyjamenn í öðru sæti með 8 vinninga og Rimaskóli í þriðja sæti með 6,5 vinning. Í fjórðu umferð, sem hófst kl. 16:30 tefla Eyjamenn við Finna og Rimaskóli við Norðmennina.