Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Finnum en Eyjamenn náðu aðeins hálfum vinningi og töpuðu því 0,5-3,5. Rimaskóli, hin íslenska sveitin í mótinu náði svo aðeins einum vinningi gegn Norðmönnum, sem sitja í efsta sæti. Þessi umferð var því íslensku sveitunum erfið en síðasti keppnisdagur mótsins er á morgun. Úrslit fjórðu umferðar má sjá hér að neðan.