Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja náði þeim stórgóða árangri að enda í 2. til 3. sæti á Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák en mótið fór fram í Eyjum um helgina. Sveit Eyjamanna var lengst af í öðru sæti en á síðustu metrunum skutust Svíar upp að hlið þeirra og urðu sveitirnar hnífjafnar. Sveit Noregs varð hins vegar Norðulandameistari en Norðmenn leiddu mótið frá upphafi.