Nú er komið í ljós að Viðar Örn Kjartansson, framherji ÍBV, er með slitið krossband. Hann varð fyrir meiðslunum í leik gegn FH í síðustu viku og í fyrstu var óttast að krossbandið væri slitið. Fyrir helgi bárust svo fréttir af því að krossbandið væri heilt en festingar þess hefðu brotnað frá beininu. Í aðgerð kom svo í ljós að krossbandið var í raun og veru slitið auk þess sem festingin hafði líka brotnað frá.