Hermann Hreiðarsson verður ekki klár í slaginn með Portsmouth annað kvöld en þá sækir liðið Carlisle heim í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu. Hermann er ekki búinn að ná sér af meiðslum í il en hann hefur ekkert spilað með suðurstrandarliðinu á tímabilinu.