Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, leikmaður ÍBV og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, sem nú spilar með Breiðabliki, skoruðu þrjú af fimm mörkum íslenska U-19 ára landsliðsins gegn Rúmeníu í gær. Þar með komst íslenska liðið áfram í milliriðil Evrópumótsins. Þriðja Eyjastúlkan, Elísa Viðarsdóttir sem spilar með ÍBV, er einnig í leikmannahópi íslenska liðsins.