Nú rétt í þessu lauk verðlaunaafhendingu á sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags en hápunktur kvöldsins er verðlaunaafhending meistaraflokkanna. Hjá karlaliði ÍBV var Andri Ólafsson valinn bestur, Eiður Aron Sigurbjörnsson efnilegastur og markahæstur varð Ajay Leitch-Smith. Í kvennaliðinu var Kristín Erna Sigurlásdóttir valin best og hún varð einnig markahæst í sumar en Hlíf Hauksdóttir var valin efnilegust.