Nú er búið að klippa saman stutt myndband frá sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags sem fór fram í Höllinni í gær. Hæst bar verðlaunaafhending en þau Kristín Erna Sigurlásdóttir og Andri Ólafsson voru kosin best hjá ÍBV og þau Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hlíf Hauksdóttir efnilegust. Þá fengu þau Eiður og Elísa Viðarsdóttir Fréttabikarinn 2009.