Fyrir lokahóf ÍBV á föstudaginn hélt kvennaráð ÍBV lítið hóf í Týsheimilinu þar sem leikmenn og þeir sem að liðinu koma, gerðu sér glaðan dag. Við það tækifæri skrifuðu fimmtán leikmenn undir tveggja ára samning hjá félaginu og bendir því allt til þess að kvennalið ÍBV verði að mestu leyti óbreytt næsta sumar.