Á Sumarlokahófi ÍBV-íþróttafélags heiðraði félagið fyrstu Íslandsmeistara ÍBV í karlaknattspyrnu en árið 1979 fögnuðu Eyjamenn sigri á Íslandsmótinu. Stór hluti hópsins, bæði leikmenn og forráðamenn liðsins eru búsettir í Eyjum en nokkrir af þeim brottfluttu komu á lokahófið. Forráðamenn ÍBV afhentu hverjum og einum innrammaða mynd sem tekin var haustið 1979 þegar titillinn var í höfn.