Eyjastúlkan Fanndís Friðriksdóttir, sem leikið hefur með Breiðablik undanfarin ár, var í gær kosin efnilegasti leikmaður Pepsídeildar kvenna. Fanndís hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar fyrir vasklega framgöngu með liði sínu enda var hún valin í A-landsliðs Íslands sem tók þátt í lokakeppni EM.