Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur Tryggvi Guðmundsson áhuga á að snúa aftur til ÍBV eftir 12 ára fjarveru en Tryggvi fór frá ÍBV haustið 1997 og hélt í atvinnu­mennsku. Eftir að hann sneri heim úr atvinnumennsku 2005, hefur hann leikið með Íslands­meisturum FH við afar góðan orðstír en hefur þurft að verma tréverkið meira en góðu hófi gegnir undanfarið. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu gríðarlegur liðsstyrkur Tryggvi yrði fyrir lið ÍBV og sjálfsagt yrði annar bragur á sóknar­leik liðsins en í sumar.