Í dag var dregið í fyrstu umferð í bikarkeppni karla í handbolta. ÍBV teflir fram einu liði í keppninni í ár og óhætt að segja að Eyjamenn fari auðveldu leiðina í gegnum umferðina því liðið situr hjá í fyrstu umferð, ásamt þremur öðrum liðum. ÍBV kemst því sjálfkrafa í 16 liða úrslit keppninnar.