Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV og lykilmaður liðsins, hefur gert munnlegt samkomulag við ÍBV um að vera áfram hjá félaginu. Andri var á dögunum kosinn leikmaður ársins hjá ÍBV en hann átti mjög gott tímabil í sumar. Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar staðfestir samkomulagið í samtali við vefsíðuna Fótbolti.net.