Mánudaginn 19. október kl. 13.41
Baggalútur segir:

Þú getur sagt þessum rauðhærða hottintotta.....

- umræðan á Alþingi í allri sinni dýrð

Þú getur sagt þessum rauðhærða hottintotta..... Þetta er ekki mynd af Tryggva Þór, en er sett inn til að krydda textann

Tryggvi Þór Herbertsson hefur klagað Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, til siðameistara Alþingis – fyrir óviðeigandi munnsöfnuð í þingsal.Segir hann ráðherra hafa kallað sig „dvergvaxna sóðagrameðlu með neikvæðan hárvöxt“ og krefst þess að hann verði ávítaður og verði sviptur eftirrétti í mötuneyti Alþingis í heilan mánuð.


„Ég held nú að hann Tryggvi ætti að skola úr litlu bláu eyrunum sínum,“ sagði Steingrímur J. þegar hann var spurður út í málið.

„Ég talaði þarna um verga þjóðarframleiðslu og neikvæðan hagvöxt – þú getur sagt þessum rauðhærða hottintotta að fletta því upp hjá þingritara.“

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn