Eins og greint var frá hér á Eyjafréttir.is hafði vefurinn heimildir fyrir því að Grindavík hafi boðið Andra Ólafssyni góðan samning fyrir að spila með liðinu næsta sumar. En hlutirnir gerðust hratt í Eyjum í dag því nú undir kvöld skrifaði Andri undir þriggja ára samning við ÍBV. Andri hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið lykilleikmaður ÍBV undanfarin ár og bar fyrirliðabandið í sumar í úrvalsdeildinni.