Samkvæmt áræðanlegum heim­ildum Eyjafrétta hefur úrvalsdeildarlið Grindavíkur gert Andra Ólafssyni, fyrirliða ÍBV�??í knatt­spyrnu, tilboð um að leika með liðinu næsta sumar. Tilboðið er samkvæmt sömu heimildum mjög gott, svo gott að hugsanlega getur ÍBV ekki jafnað tilboðið. Andri er samningslaus og hefur verið í viðræðum við ÍBV en vitað var af áhuga nokkurra, ef ekki flestra liða úrvalsdeildarinnar að fá þennan sterka leikmann í sínar raðir. Að sama skapi yrði það gríðarlegt kjaftshögg fyrir ÍBV að missa hann frá félaginu.