„Það er metnaður hjá félaginum og það á að styrkja liðið og gera betri hluti en í sumar. Það var fyrst og fremst sá metnaður sem er fyrir hendi sem varð til þess að ég ákvað að vera áfram hjá félaginu. Við ætlum okkur stærri hluti en í sumar og við ætlum að taka næsta skref, það er lykilatriði fyrir mig,“ sagði Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV sem skrifaði fyrr í kvöld undir þriggja ára samning hjá félaginu.