Sigurður Ari Stefánsson skoraði 6 mörk fyrir Elverum þegar liðið sigraði Follo á útivelli, 30:20, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Elverum hefur farið vel af stað í deildinni og er efst og taplaust eftir fjórar umferðir ásamt Drammen.