Nú er hafinn blaðamannafundur knattspyrnudeildar ÍBV í Kópavogi þar sem tveir nýir leikmenn eru kynntir til leiks. Eyjafréttir hafa fengið það staðfest að um er að ræða þá Tryggva Guðmundsson, sem lék um árabil með ÍBV og Ásgeir Aron Ásgeirsson, son besta leikmanns Eyjanna og landsins frá upphafi, Ásgeirs Sigurvinssonar. Koma þeirra til félagsins sýnir hug Eyjamanna að stefna hærra næsta sumar og gera atlögu að Evrópusæti. Knattspyrnudeild hefur sent frá sér fréttatilkynningu sem má lesa hér að neðan.