Hermann Hreiðarsson er ekki klár í slaginn með Portsmouth sem mætir Hull á KC vellinum í Hull í sannköllum fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun. Hermann er að skríða saman eftir meiðsli á fæti en Paul Hart knattspyrnustjóri liðsins metur það svo að það sé of snemmt fyrir Eyjamanninn að spila á morgun.