Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur ákveðið að leika áfram með knattspyrnuliði ÍBV næsta sumar en Kristín Erna var samningslaus eftir tímabilið. Hún var ein fárra leikmanna ÍBV síðasta sumar sem ekki höfðu skrifað undir nýjan samning hjá félaginu en Kristín Erna gerði tveggja ára samning við ÍBV, sem er með uppsagnarákvæði eftir eitt ár.