Kári Kristján Kristjánsson og samherjar í Amicitia Zürich unnu stórsigur á Fortitudo Gossau, 38:22, á útivelli í svissnesku Adeildinni í handknattleik. Kári Kristján skoraði fjögur af mörkum liðsins í leiknum. Amicitia er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu leiki.