Síðastliðin fimmtudag kom nýr þjálfari félagsins til landsins en hann kemur frá Svartfjallalandi og heitir Nenad Musikic. Nenad er 43 ára gamall og hefur 21 árs reynslu af þjálfun og hefur komið víða við á ferlinum. Hann hefur meðal annars þjálfað eitt tímabil hjá Breiðabliki og náði þar frábærum árangri með nokkra yngri flokka félagsins og meistaraflokk kvenna.