Atli Jóhannsson er ekki á leið heim í ÍBV. Þetta staðfesti Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV áðan en Eyjamenn höfðu rætt við Atla um að ganga í raðir síns gamla félags. Atli er hins vegar búsettur í Reykjavík og hyggst vera þar áfram, enn um sinn í það minnsta.