Mikið hefur verið rætt um þann möguleika að Eyja­maðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður muni snúa aftur í herbúðir ÍBV næsta sumar og leika með liðinu. Gunnari hefur ekki gengið vel hjá danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg en hann hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig með liðinu á yfirstandandi tímabili, lék síðast með aðalliðinu 1. ágúst en hefur spilað með varaliðinu síðan. Rætt er við Gunnar í Fréttum, sem koma út í dag en þar segir Gunnar ólíklegt að hann spili með ÍBV næsta sumar.