Handboltalið ÍBV halda á morgun í víking en ferðinni er heitið í höfuðborgina, nánar tiltekið í Fossvoginn þar sem leika á gegn Víkingum. Karlaliðið leikur gegn heimamönnum klukkan 13.30 en kvennaliðið gegn heimastúlkum klukkan 15.15. Báðir leikirnir fara fram í Víkinni, félagsheimili Víkinga.