Karlalið ÍBV tapaði í dag með tíu mörkum gegn Víkingi í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta en liðin áttust við í Víkinni, heimavelli Víkinga. Lokatölur urðu 33:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17:9 fyrir heimamenn. Eftir leikinn eru liðin jöfn í 3.-5. sæti ásamt ÍR-ingum með fjögur stig, hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur. Eyjamenn geta þó ágætlega við unað enda leikið þrjá útileiki og aðeins einn heimaleik.