Karlalið ÍBV í körfubolta er komið í 16 liða úrslit bikarkeppninnar eftir frækinn útisigur á Reyni Sandgerði í gær. Lokatölur urðu 66:69 ÍBV í vil en staðan í hállfeik var 34:36 fyrir Eyjamönnum. Í lið Eyjamanna vantaði nokkra sterka leikmenn og því er sigur Eyjamanna enn fræknari. 32ja liða úrslitin klárast á morgun og verður væntanlega dregið í 16 liða úrslitum fljótlega eftir það.