Karlalið ÍBV í körfuknattleik var í pottinum þegar dregið var í 16 liða úrslitum Subwaybikarkeppninnar fyrir stundu. Ekki verður sagt að Eyjamenn hafi dottið í lukkupottinn því ÍBV spilar við úrvalsdeildarlið Breiðablik á útivelli. Leikirnir í 16 liða úrslitum fara fram 5. og 6. desember.