Knattspyrnuheimurinn varð fyrir miklu áfalli í vikunni þegar að Robert Enke, markvörður Hannover og þýska landsliðsins, framdi sjálfsmorð með því að ganga í veg fyrir lest. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Esbjerg, var hjá Hannover á sama tíma og Enke tímabilið 2006 og 2007. Gunnar Heiðar segir að það hafi verið mikið reiðarslag þegar hann frétti af dauða Enke.