Kristófer Gautason, ungur skákmaður úr Taflfélagi Vestmannaeyja, hóf keppni í gær á Heimsmeistaramóti ungmenna í skák, sem fram fer í Tyrklandi. Þrír íslenskir keppendur taka þátt í mótinu, auk Kristófers en allir koma þeir af landbyggðinni. Með krökkunum fer annar Eyjamaður, Helgi Ólafsson sem er jafnframt þjálfari krakkanna.