Í dag verður sannkölluð handboltaveisla þegar kvenna- og karlalið ÍBV leika heimaleiki sína. Kl. 11.00 taka stelpurnar á móti sameiginlegu liði Aftureldingar og Fjölnis í 2. deild Íslandsmótsins. Stelpurnar mæta með sært stolt eftir tapleik um síðustu helgi gegn Víkingi. Karlaliðið er í sömu sporum eftir tap um síðustu helgi gegn Víkingum en þeir taka á móti nágrönnum sínum frá Selfossi í Suðurlandsslag 1. deildar klukkan 13.30.