Eyjaliðin ÍBV og KFS leika í sama riðli í Íslandsmótinu í Futsal, sem er aðeins öðruvísi útfærsla á innanhúsfótbolta en sú sem notuð var árum áður. Bæði liðin léku tvívegsi gegn Hvöt, sem var Íslandsmeistari í Futsal á síðasta ári og keppti m.a. á dögunum í Evrópukeppninni. ÍBV vann báða sína leiki örugglega á meðan KFS vann fyrri leikinn en tapaði þeim síðari.