Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Esbjerg, verður til reynslu hjá enska félaginu Reading í þessari viku en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við Fótbolta.net í dag. Gunnar Heiðar hefur fengið fá tækifæri með Esbjerg á þessu tímabili og hann hefur lýst því yfir að hann vilji yfirgefa félagið.