Kristófer Gautason, ungur skákmaður úr Taflfélagi Vestmannaeyja teflir nú á Heimsmeistaramóti ungmenna í skák en mótið fer fram í Tyrklandi. Nú er fjórum umferðum lokið en Kristófer hefur unnið eina skák, gert tvö jafntefli og tapað einni skák. Í flokki Kristófers, 12 ára og yngri eru 149 keppendur frá 62 löndum. Kristófer er sem stendur í 80. sæti.