Niels Erik Söndergaard, yfirmaður íþróttamála hjá danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg, segist finna fyrir miklum áhuga hjá Reading á framherjanum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni sem er nú til reynslu hjá enska liðinu. „Það er rétt að hann mun dvelja við æfingar hjá Reading í þessari viku og mun m.a. spila æfingaleik með liðinu,“ sagði Söndergaard í samtali við vefmiðilinn Onside.dk.